Nú er hönnunarmars í fullum gangi á farsældar fróni og fyrir áhugasama vil benda á að það er hægt að skoða hvaða viðburðir eru í gangi hér. Ég hef alveg svakalega gaman að því að takast á við verkefni sem er ögrandi á einhvern hátt. Eitthvað sem ég hef ekki fengist við áður. Því fylgir ákveðin spenna sem er ólýsanleg en er ótrúlega ávanabindandi. Þetta er eitthvað sem er ekkert endilega bundið við ljósmyndun en er engu að síður eitthvað sem mér finnst alveg nauðsynlegt, mæli eindregið með þessu!
Read MoreHDR
H.elvítis D.jöfulsins R.usl /
Ég þarf ekki að fara langt aftur í tíma til þess finna í mér gengdarlausa gremju gagnvart HDR myndum. Það er svo að mínu mati að HDR er gríðarlega vandmeðfarið en jafnframt öflugt tól í vopni nútíma ljósmyndarans. Eftir að ég fór að prófa þetta sjálfur fór ég nefninlega fljótlega að sjá ljósið. Ef við veltum því aðeins upp hvað HDR er (e.High dynamic range) að þá er það ekkert annað en aðferð sem við getum beitt við myndatökur til þess eins að auka tónsvið myndavélarinnar. Read More
Anima.is - ný síða og frábært samstarf /
Það getur verið alveg dásamlegt að hitta á gott samstarf þegar maður er í þjónustu starfi sem ljósmyndun svo sannarlega er. Í desember seinastliðnum og aftur í nýliðnum janúar átti ég frábært samstarf með Önnu Hanson sem er innanhúss arkítekt. Ég fékk að fara í fyrirtæki og inn á heimili og mynda hennar verk.
Read More